Kannabisplanta í fataskápnum

Kannabisplanta fannst í fataskáp í herbergi unglingspilts í Reykjavík síðdegis í gær, að því er fram kemur á Lögregluvefnum. Pilturinn gekkst við því að hafa komið plöntunni þar fyrir en við hana hafði hann sett sérstakt hitaljós. Kannabisplantan var haldlögð.

Í gærkvöld voru tveir karlmenn og ein kona handtekin í íbúð í úthverfi. Innandyra fundust ætluð fíkniefni en auk þess voru munir haldlagðir. Nokkru síðar var liðlega tvítugur piltur handtekinn í austurborginni en hann er grunaður um fíkniefnamisferli. Þá fundust ætluð fíkniefni í verslunarmiðstöð um miðjan dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert