Heiðursverðlaun Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík voru afhent í fyrsta sinn í dag í tilefni af 140 ára afmæli félagsins. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og Ásgrímur Jónasson formaður Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, afhentu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Við sama tækifæri veittu Iðnmennt og Háskólinn í Reykjavík verðlaun.
Fjölmargir nýsveinar hlutu tilnefningu sinna sveinsprófsnefnda fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi árið 2006, að því er segir í tilkynningu. Verðlaunin hlutu:
Ágúst B. Hinriksson, Pípulagnir, Borgarholtsskóli, Silfurverðlaun
Bylgja Mjöll Helgadóttir, Bakaraiðn, Menntaskólinn í Kópavogi, Bronsverðlaun
Davíð Sigurðsson, Rafeindavirkjun, Iðnskólinn í Reykjavík, Bronsverðlaun
Davíð Þór Harðarson, Pípulagnir, Borgarholtsskóli, Bronsverðlaun
Gísli Eiberg Tómasson, Pípulagnir, Borgarholtsskóli, Bronsverðlaun
Guðmundur Ingi Guðmundsson, Rafeindavirkjun, Iðnskólinn í Reykjavík, Bronsverðlaun
Helgi hrannar Traustason, Húsasmíði, Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra, Bronsverðlaun
Jakob Sigurðsson, Pípulagnir, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Bronsverðlaun
Jónas Jónsson, Pípulagnir, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Silfurverðlaun
Kristinn Tobías Björgvinsson, Húsasmíði, Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra, Bronsverðlaun
Sesselja I. Reynisdóttir, Framreiðsla, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Menntaskólinn í Kópavogi, Bronsverðlaun.
Andri Þór Arinbjörnsson sveinn í Málaraiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt í keppnum fyrir Íslands hönd í sinni iðngrein, en hann var hlutskarpastur á norðurlandamóti í málaraiðn á liðnu ári, hann hlaut Silfurverðlaun fyrir sinn árangur og framúrskarandi sveinspróf árið 2005.
Háskólinn í Reykjavík veitti fjórum nýsveinum með afburða sveinspróf verðlaun í formi námsstyrks sem samsvarar einni önn í tækni- og verkfræðideild skólans. Verðlaunin hlutu:
Ágúst B. Hinriksson
Davíð Þór Harðarson
Guðmundur Ingi Guðmundsson
Kristinn Tobías Björgvinsson
Iðnmennt, samtök starfsnámsskóla veittu þremur útskriftarnemendum starfsnámsbrauta verðlaun fyrir frábæran námsárangur á sínu sviði. Verðlaunin hlutu:
Sigurður Bjarni Sigurðsson, trésmíði frá Verkmenntaskólanum á Akureyri
Lára Fanney Gylfadóttir, grafísk miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Ester Rafnsdóttir, snyrtifræði frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti