Tveir voru fluttir á Landspítalann háskólasjúkrahús eftir harðan árekstur sunnan við Borg í Grímsnesi á Biskupstungnabraut. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var um framúrakstur að ræða og skullu tvær jeppabifreiðar saman. Fimm voru í öðrum bílnum en fjórir í hinum.