Mikill erill á höfuðborgarsvæðinu aðra nóttina í röð

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og voru allir 15 fangaklefarnir í lögreglustöðinni í Hverfisgötu fullnýttir aðra nóttina í röð. Að sögn lögreglu komu upp sex fíkniefnamál, fimm voru teknir ölvaðir við akstur og sex líkamsárásarmál komu upp í miðborginni.

Mikil ölvun var í miðbænum og eitthvað var um pústra manna á milli. Þá var lögreglan kölluð þrisvar sinnum út vegna heimilisóláta og þá urðu fjögur minniháttar umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert