Dagsetningu samræmda prófa vorið 2008 breytt

Menntamálaráðuneytið hefur sent skólastjórnendum bréf þar sem fram kemur að dagsetningum samræmdra lokaprófa í 10. bekk grunnskóla vorið 2008 hefur verið breytt. Kemur fram í bréfinu að vegna ábendinga um að óheppilegt sé að síðasti prófdagur sé á föstudegi hefur menntamálaráðherra ákveðið nýjar dagsetningar fyrir prófin.

Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla vorið 2008 verða sem hér segir:

Íslenska þriðjudagur 29. apríl kl. 9.00-12.00
Enska miðvikud. 30. apríl kl. 9.00-12.00
Náttúrufræði föstudagur 2. maí kl. 9.00-12.00
Samfélagsgreinar mánudagur 5. maí kl. 9.00-12.00
Danska þriðjudagur 6. maí kl. 9.00-12.00
Stærðfræði fimmtudagur 8. maí kl. 9.00-12.00

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert