Skagamenn orðnir 6.000

Akurnesingar eru nú orðnir 6.000, en lítil og hárprúð stúlka sem fæddist í gær á heiðurinn af því. Stúlkan var 15 merkur og 52 sm við fæðingu. Bæjarstjóri Akraness, Gísli S. Einarsson, heimsótti hana og foreldra hannar á sjúkrahús í gær af þessu tilefni og fór vel á með þeim, að því er segir á vefsíðunni akranes.is. Foreldrar stúlkunnar eru þau Eva Lind Matthíasdóttir og Gunnar Þór Gunnarsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert