Nú stendur yfir fundur, sem bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ boðuðu til um hönnun fyrirhugaðrar tengibrautar inn í Helgafellshverfi. Þessi framkvæmd er afar umdeild, og í síðustu viku stóðu andstæðingar hennar að mótmælaaðgerðum og freistuðu þess að stöðva vinnuvélar, sem voru að störfum.