Efla á áhuga í öðrum löndum á íslenskri list og menningu

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við undirritun í …
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við undirritun í dag. mbl.is/Sverrir

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um samstarf ráðuneytanna á sviði menningarmála. Samkomulagið felur það í sér, að samstarf ráðuneytanna á þessu sviði skuli styrkt. Jafnframt skal mörkuð stefna sem miðar að því að efla áhuga erlendis á íslenskri list og menningu, auka möguleika og áhrif íslenskra listamanna á alþjóðlegum vettvangi.

Bæta á menningarímynd Íslands og auka gagnkvæm menningarsamskipti við önnur lönd og menningarsvæði. Ráðuneytin munu á yfirstandandi ári leggja fé af mörkum til þessara mála. Stefnt er að því að auka fjárframlögin í áföngum á næstu árum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert