Egill Vagn Sigurðsson, átta ára, tók í dag við viðurkenningu frá Rauða krossinum, sem valdi hann Skyndihjálparmann ársins 2006 fyrir rétt viðbrögð á neyðarstundu. Egill bjargaði lífi móður sinnar í júní í fyrra þegar hún hneig niður á heimili þeirra og missti meðvitund vegna bráðaofnæmis.
Egill Vagn brást skjótt við og sótti adrenalínpenna í veski móður sinnar og sprautaði hana í handlegginn, en hringdi síðan í neyðarlínuna 112 eftir hjálp. Hann fór svo eftir fyrirmælum neyðarvarðar þar til sjúkrabíll kom á staðinn, segir í tilkynningu frá Rauða krossinum.
Egill Vagn hikaði hvergi, og bar sig í öllu rétt að þrátt fyrir ungan aldur. Það var móður hans til lífs að hún hafði rætt við hann um hvað þyrfti að gera ef eitthvað kæmi fyrir sig, og að hann vissi hvar adrenalínpennann var að finna og hvernig ætti að nota hann.
Þetta er í sjötta sinn sem Rauði kross Íslands útnefnir Skyndihjálparmann ársins. Viðurkenninguna hlýtur sá einstaklingur sem hefur á árinu veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt. Tilgangur tilnefningarinnar er ekki síður að hvetja aðra til að læra skyndihjálp og vera þar af leiðandi hæfari til að veita aðstoð á vettvangi slysa og áfalla.
Rauði kross Íslands veitir einnig eftirtöldum einstaklingum viðurkenningu fyrir skyndihjálparafrek á árinu 2006: Andreu Jónheiði Ísólfsdóttir, fyrir að hafa hnoðað og blásið lífi í 2 ára stúlku sem dottið hafði ofan í tjörn, Finni Leó Haukssyni, fyrir að losa aðskotahlut úr öndunarvegi þriggja ára systur sinnar þegar að brjóstsykur stóð í henni á aðfangadagskvöld, Gauta Grétarssyni, fyrir að bjarga 17 ára stúlku sem missti meðvitund og fór í hjartastopp á handboltaleik með því að beita hjartahnoði og blása í hana lífi, Lilju Dóru Michelsen, fyrir að blása lífi í ungabarn í andnauð fyrir utan matvöruverslun í Hafnarfirði, og Ríkharð Owen. Ríkharð kom að manni sem fengið hafði hjartáfall í bíl sínum á Reykjanesbrautinni, hringdi í Neyðarlínuna 112, hnoðaði manninn í 20 mínútur þar til lífsmark greindist og sérhæfð aðstoð barst.