Pallbíll á 129 km hraða á Sandgerðisvegi

Lögreglan á Suðurnesjum kærði 9 ökumenn í nótt og gærkvöldi fyrir hraðakstur. Þar af voru fimm kærðir á Reykjanesbraut, tveir á Sandgerðisvegi og tveir á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Sá sem ók greiðast mældist á 129 km hraða á Sandgerðisvegi en sá var á stórum pallbíl, sem er þyngri en 3500 kg og mátti því ekki fara hraðar en 80 km.

Í gær voru fjórir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá er hraðast ók var á 147 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hinir voru á 116, 123 og 138 km hraða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert