Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára stúlku, Kolbrúnu Söru Runólfsdóttur. Hún er 168 sm á hæð, dökkhærð, stuttklippt og þéttvaxin. Kolbrún fór að heiman síðdegis þann 10. febrúar s.l. og hefur ekkert til hennar spurst síðan. Kolbrún var klædd í rauða mittisúlpu, gallabuxur, og bláa íþróttaskó.
Kolbrún gæti verið á svartri BMW-bifreið með númerinu YA-185, en hún tók þá bifreið ófrjálsri hendi frá foreldrum. Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir Kolbrúnar Söru eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.