Vinnur í viku hjá Hafnarfjarðarbæ upp í kostnað vegna tjóns

Beitt var sáttamiðlun í máli pilts sem sprengdi strætisvagnaskýli með heimatilbúinni sprengju í Hafnarfirði á dögunum. Tjónið var umtalsvert. Komið var á fundi með tjónvaldinum og foreldrum hans, lögreglu og eigendum strætisvagnaskýlisins, þ.e. Hafnarfjarðarbæ. Samkomulag náðist um að falla frá kröfum gegn því að pilturinn ynni eina viku hjá þjónustumiðstöð bæjarins. Laun hans munu renna upp í kostnað sem hlaust af sprengjunni.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er sáttamiðlun í sakamálum nýtt tilraunaverkefni sem hófst 1. október sl. og gildir í tvö ár. Sáttamiðlun stendur öllum til boða sem náð hafa sakhæfisaldri en sé þolandi eða gerandi yngri en 18 ára skal lögráðamaður samþykkja að sáttamiðlun verði beitt. Þetta nýja úrræði er til hagsbóta fyrir bæði þolendur og gerendur og þar með samfélagið allt. Að tveimur árum liðnum verður árangur verkefnisins metinn og ákvarðað hvort úrræðið skuli verða varanlegur hluti refsivörslukerfisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert