„Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum krefjast þess að íbúum á Suðurnesjum verði gert kleift að kjósa um fyrirhugað álver í Helguvík. Álver hefur gríðarlega mikil áhrif á samfélagið og umhverfið á Suðurnesjum og þess vegna verður vilji almennings að koma fram með skýrum hætti. Uj-Suð skorar því á sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum að efna til almennrar atkvæðagreiðslu um þessi áform áður en til framkvæmda kemur."
Þessi ályktum var kynnt á opnum fundi sem Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum héldu á Ránni í Reykjanesbæ í gærkvöld. Þetta er fyrsti íbúafundur sem er haldinn í Reykjanesbæ þar sem bæði fulltrúar álvers og umhverfis kynna sjónarmið sín, að því er segir í tilkynningu.