Hugmynd um jarðgöng lifir góðu lífi

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Brynjar Gauti

Ægisdyr, áhugafélag um vegtengingu milli lands og Eyja, ítreka í fréttatilkynningu að hugmyndin um jarðgöng milli lands og Eyja lifir enn góðu lífi.

„Ægisdyrum fylgir stór hluti íbúa Vestmannaeyja og nágranna okkar á Suðurlandi sem sjá jarðgöng sem einu varanlegu lausnina fyrir þetta svæði. Nú nýverið var haldinn ágætur fundur með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins, þar sem staða gangamálsins var rædd með þeim sérfræðingum sem komið hafa að málinu. Ægisdyr binda góðar vonir við að með þeim fundi komist hreyfing á málin og rannsóknum vegna jarðganga verði gert jafn hátt undir höfði og öðrum kostum sem eru til skoðunar.

Samgönguáætlun sú sem nú liggur fyrir Alþingi er einungis áætlun og henni fylgja ekki ákvarðanir um fjárveitingar. Áætlanir eru vissulega gagnlegar en eins og við vitum þá geta þær tekið breytingum. Varðandi samgöngur við Vestmannaeyjar þá er nauðsynlegt að ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga hlusti betur eftir þörfum og óskum Eyjamanna, annars vegar hvað varðar núverandi samgöngur og hins vegar það sem snýr að framtíðarlausn.

Ægisdyr eru að vinna í því af fullum krafti að koma af stað nauðsynlegum jarðfræðirannsóknum við Eyjar, en allir sérfræðingar eru sammála um að það sé svæðið sem þurfi að skoða hvað best. Stefnt er á að þær rannsóknir hefjist á vordögum og niðurstöður liggi fyrir í byrjun sumars. Það er mikilvægt fyrir ráðamenn þjóðarinnar að hafa sem réttastar upplýsingar þegar ákvörðun um framtíðarlausn í samgöngum við Vestmannaeyjar verður tekin," að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert