Miklubraut hefur verið lokað í vesturátt frá Lönguhlíð að Rauðarárstíg vegna umferðaróhapps. Mun ökumaður sem var á leið í austurátt hafa misst stjórn á bíl sínum til móts við Klambratún, og ók hann í gegn um vegrið og hafnaði á akrein í vestur. Maðurinn er ekki talinn slasaður, en gatan verður lokuð um sinn meðan lögreglan er á vettvangi.
Nóttin var annars annasöm hjá lögreglunni, talsvert um ölvun í borginni og vöru sjö teknir grunaðir um ölvunarakstur,
Þá veitti lögregla manni eftirför um fimmleytið í nótt eftir að tilkynnt var um ölvaðan ökumann á leið frá Selfossi til Reykjavíkur. Maðurinn virti ekki fyrirmæli um að nema staðar og var stöðvaður með ákeyrslu á Reykjanesbraut við Stekkjarbakka og gistir nú fangageymslur lögreglu.