Dagur Arngrímsson og Hjörvar Steinn Grétarsson eru báðir í 2.-3. sæti að lokinni fjórðu umferð NM í skólaskák, sem fram fór í gærkvöldi. Sverrir Þorgeirsson er í 4.-5. sæti og Dagur Andri Friðgeirsson í 4.-6. sæti. Svíar hafa staðið sig áberandi best en Íslendingar eru í 4.-5. sæti á mótinu.