Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, hefur gengið í þingflokk Frjálslynda flokksins en hann sagði sig nýlega úr Framsóknarflokknum. Þetta var tilkynnt í upphafi þingfundar á Alþingi í dag. Kristinn sat í dag sinn fyrsta formlega fund með þingflokknum.