Fyrsta skóflustungan að byggingu nýs húsnæðis fyrir göngudeild Barna- og unglingageðdeildar Landspítala-háskólasjúkrahúss (BUGL) við Dalbraut 12 var tekin í dag. Þá voru undirritaðir samningar um framkvæmd verksins við verktakafyrirtækið Framkvæmd ehf. Húsnæðinu verður skilað fullbúnu í maí á næsta ári.
Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu, að Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, hafi tekið fyrstu skóflustunguna í dag. Fyrirhugað er að vinna verkið í fjórum áföngum og hljóðar frumkostnaðaráætlun vegna allra áfanganna fjögurra, sem unnin var af Arkís ehf., upp á 650 milljónir króna.
Fyrsti áfanginn, nýbygging göngudeildar, var boðinn út í desember 2006 og bárust 14 tilboð. Lægsta tilboð átti Framkvæmd sem bauð 275 milljónir króna eða 95,6% af kostnaðaráætlun.
Ráðuneytið segir, að við uppbyggingu BUGL sé byggt á þeirri stefnu Landspítala háskólasjúkrahúss, að efla dag- og göngudeildarþjónustu og leggja meiri áherslu á meðferðarrými fyrir einstaklinga og hópa en hefðbundin legurými. Með byggingu fyrsta áfanga verði umtalsvert rýmra um göngudeildarþjónustuna og vegi þar þyngst fjölgun viðtalsherbergja og meðferðarherbergja.
Viðbyggingin verður 1244 fermetrar, tvær hæðir og kjallari. Á efri hæðunum tveimur verður móttaka og skrifstofur en í kjallara verður matsalur, geymslur og vinnuaðstaða. Grafið verður frá kjallaranum og hægt að ganga þaðan út í garð. Byggingin verður tengd núverandi húsi með glerjuðum tengigangi og ný aðkoma verður gerð að húsinu frá Dalbraut þar sem verða bílastæði.
Fjöldi félagasamtaka hefur stutt við áform um uppbyggingu barna- og unglingageðdeildarinnar með myndarlegum gjöfum. Má þar nefna Kvenfélagið Hringinn, Barnaheill, Thorvaldsenfélagið, Kiwanis, Lionshreyfinguna, kvenfélagasamtök og marga fleiri, einstaklinga og fyrirtæki.
Verkkaupi framkvæmdarinnar er Landspítali-háskólasjúkrahús fyrir hönd heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins. Byggingin er hönnuð af Arkís ehf., hönnun lóðarinnar annaðist Landhönnun ehf., Línuhönnun hf. hannaði burðarþol og lagnir og Raftæknistofan ehf. raflagnir.