Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að Eiður Guðnason, sendiherra, fari til starfa í Þórshöfn í Færeyjum sem aðalræðismaður Íslands á nýrri sendiræðisskrifstofu sem verður opnuð þar í byrjun apríl.
Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að unnið sé nú að formlegum frágangi málsins í samráði við dönsk og færeysk stjórnvöld.
Ísland hefur haft ræðismannsskrifstofu í Færeyjum síðastliðin 60 ár en ávallt hefur verið um ólaunað hlutastarf kjörræðismanns að ræða. Með opnun sendiræðisskrifstofu gefist aukið svigrúm til að efla og treysta tengsl Íslands og Færeyja á sviði viðskipta og menningar.
Hin nýja skrifstofa aðalræðismanns Íslands verður til húsa í Fútastovunni í hjarta Þórshafnar.