Opið í Hlíðarfjalli og gott skíðafæri

Frá skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.
Frá skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. mbl.is/Kristján

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opið í dag frá kl. 10-17. Allar lyftur eru opnar og flestar skíðaleiðir opnar og troðnar ásamt göngubraut.

Um 15 sm djúpur snjór er nú í fjallinu og góður til að renna sér á. Kl. 8 í morgun var norðan 1-4 m/s og -6 stiga frost og snjóél á skíðasvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert