Eldri borgarar á Álftanesi mótmæla hækkun fasteignagjalda

Sveitarfélagið Álftanes.
Sveitarfélagið Álftanes. mbl.is/RAX

Félag eldri borgara Álftanesi mótmælir harðlega umtalsverðri hækkun fasteignagjalda á Álftanesi og segir það eftir að reynast ellilífeyrisþegum erfitt að standa undir þeim gjöldum. Í ályktun aðalfundar félagsins, sem haldinn var í gær, er einnig mótmælt „eymdarlega lágum tekjuviðmiðum til aflsáttar af fasteignagjöldum“ og kröfðust félagsmenn þess að þau viðmið yrðu tekin til endurskoðunar án tafar og hækkuð þannig að komi að gagni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert