Starfsmaður Landhelgisgæslunnar til starfa hjá FAO

Gylfa Geirsson að kynna fjareftirlit á ráðstefnu FAO í Róm …
Gylfa Geirsson að kynna fjareftirlit á ráðstefnu FAO í Róm árið 2005.

Starfsmaður Landhelgisgæslunnar, Gylfi Geirsson, heldur á morgun til Rómar á Ítalíu þar sem hann mun starfa hjá Matvæla- og Landbúnaðarstofnun Sameinuðu Þjóðanna (FAO) næstu mánuði við verkefni tengd fjareftirliti og rafrænum afladagbókum. Verkefnið er unnið í samvinnu við sjávarútvegs- og utanríkisráðuneytið.

Matvæla- og Landbúnaðarstofnunin óskaði eftir því við íslensk stjórnvöld að Ísland sendi fjareftirlitssérfræðing til starfa hjá stofnuninni, samkvæmt tilkynningu.

Innan fiskveiðilögsagna ríkja og á úthafsveiðisvæðum fer eftirlit með fiskveiðum í æ ríkari mæli fram með fjareftirliti og auðveldar það til muna skipulag eftirlits frá sjó og úr lofti.

Veiðiskipin eru búin sjálfvirku senditæki sem sendir boð um gervihnött til eftirlitsstöðvar í heimalandinu og þannig er hægt að fylgjast náið með staðsetningu skipsins. Fjareftirlitið eykur einnig möguleika á björgun skipa enda er með þeim hætti hægt að staðsetja skip í sjávarháska og auðvelda þannig björgunarskipi, öðrum nærstöddum skipum eða björgunarloftfari að nálgast það. Fjölþjóðlegar fiskveiðinefndir hafa meðal annars nýtt sér þessa tækni til að hafa eftirlit með veiðum á úthafsveiðisvæðum. Fjareftirlitið kemur ekki í stað virks eftirlits á sjó og úr lofti en gerir það mun markvissara, að því er segir í tilkynningu.

Gylfi Geirsson hóf störf sem loftskeytamaður hjá Landhelgisgæslunni árið 1971 og hefur gegnt fjölmörgum og ábyrgðarstörfum þar m.a. sem forstöðumaður fjarskipta- og upplýsingatæknisviðs frá 1995 og fjareftirlits og fjarskiptaþróunar frá 2005. Hann hefur verið fulltrúi Íslands á fundum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) og Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðisamtakanna (NAFO) sl. 12 ár í umboði sjávarútvegsráðuneytisins og er núverandi formaður tækninefndar NEAFC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert