Harður árekstur á mótum Hringbrautar og Njarðargötu

Frá slysstað í kvöld.
Frá slysstað í kvöld. mbl.is/Júlíus

Harður árekstur varð á mótum Hringbrautar og Njarðargötu í Reykjavík um hálf níuleytið í kvöld, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Slys urðu á fólki, en voru ekki talin alvarleg, að sögn lögreglunnar. Bílarnir komu hvor úr sinni átt eftir Njarðargötu og beygði annar inn á Hringbraut í veg fyrir bílinn sem kom á móti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert