Sonurinn látinn sofa úr sér í fangageymslu

mbl.is/Jim Smart

Talsverð ölvun var á tveimur skólaböllum framhaldsskólanema sem haldin voru í Reykjavík í gærkvöldi. Hringt var í foreldra nokkurra unglinga og þeim gert að sækja börn sín. Á öðrum dansleiknum voru tveir piltar, 16 og 17 ára, handteknir og fluttir á lögreglustöð. Móður annars drengsins leist ekki betur á en svo að hún bað lögreglu að geyma drenginn í nótt í stað þess að fara með hann heim.

Báðir voru drengirnir ölvaðir og létu mjög ófriðlega. Haft var samband við foreldra þeirra og kom faðir þess eldri fljótlega og sótti son sinn. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu var honum nokkuð brugðið við að sjá ástandið á syninum og íhugaði alvarlega að skilja hann eftir og láta hann sofa úr sér áfengisvímuna í fangaklefa. Til þess kom þó ekki.

Móðir yngri piltsins kom nokkru síðar og var henni líka brugðið. Hún taldi það syni sínum hins vegar fyrir bestu að hann yrði látinn sofa úr sér áfengisvímuna í vörslu lögreglunnar. Hélt hún því á brott en sonurinn varð eftir. Honum var síðan sleppt úr haldi í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert