Vildarkort fyrir Hafnfirðinga 67 ára og eldri

Sundlaug Hafnarfjarðar
Sundlaug Hafnarfjarðar mbl.is/Golli

Hafnarfjarðarbær kynnir í dag vildarkort fyrir Hafnfirðinga 67 ára og eldri. Kortið veitir vildarkjör hjá stofnunum bæjarins og niðurgreiðslur fyrir þá sem orðnir eru 67 ára að íþrótta- og félagsstarfi í bænum. Kortið veitir einnig aðgang að öllum söfnum bæjarins og sundlaugum ásamt niðurgreiðslu á þátttökugjöldum í líkamsrækt. Einnig veitir kortið, handhafa, möguleika á að ferðast með strætó án endurgjalds.

Kortið verður kynnt í dag og mun bæjarstjóri Hafnfirðinga, Lúðvík Geirsson, skrifa undir samninga við íþróttabandalag Hafnarfjarðar, tómstundabandalag Hafnarfjarðar og líkamsræktarstöðvar í bænum þar sem bærinn mun taka að sér að greiða niður þátttökugjöld hjá 67 ára og eldri sambærilegt við það sem gert hefur verið fyrir yngri bæjarbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert