Handtekinn eftir húsleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á þrítugsaldri í gær en í vistaverum hans fundust ætluð fíkniefni. Að sögn lögreglu er talið, að þetta séu 250 grömm af hassi og neyslumagn af kókaíni. Hjá manninum fannst einnig talsvert af fjármunum og var lagt hald á þá.

Handtakan kom í kjölfar húsleitar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnabrota. Málið telst upplýst og fer nú til ákærumeðferðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert