Miklabrautin í stokk á þessu kjörtímabili

Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.
Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. mbl.is/Árni Sæberg

Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs, segir að ráðist verði byggingu stokka á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar áður en kjörtímabili núverandi borgarmeirihluta lýkur, Öskjuhlíðargöng verði svo grafin í náinni framtíð.

Gísli skýrði frá þessum hugmyndum sem eru enn á teikniborðinu á fundi íbúasamtaka 3. hverfis Reykjavíkur í Háteigsskóla í gær, þar sem kynntar voru tillögur til að draga úr svifryksmengun, m.a. takmarkanir á ökuhraða á stofnæðum.

„Sú lausn sem samtökin hafa verið að kynna gerir ráð fyrir mislægum gatnamótum á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og að báðir stokkarnir verði neðanjarðar," segir Gísli. „Það er einmitt það sem borgin og Vegagerðin hafa stefnt að og eru að láta gera frumdrög að hönnun á núna, sem verða kynnt á allra næstu vikum."

Næði nærri að Bústaðavegi
Gísli segir að nú sé verið að ræða hversu langir stokkarnir eigi að vera og er ekki gert ráð fyrir því að þeir nái alla leið frá Snorrabraut í vestri og að Grensásvegi í austri á Miklubraut annars vegar og frá Bústaðavegi í suðri til Háaleitisbrautar í norðri á Kringlumýrarbraut hins vegar, líkt og samtökin hafa lagt til í dýrari útfærslu sinni af tveimur.

„Stokkurinn á Kringlumýrarbraut er t.d. í nýjustu tillögum kominn býsna langt suður," segir Gísli og játar aðspurður að hann fari langleiðina að Bústaðavegi.

Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert