Fangi strauk frá tannlækninum

Fangi af Litla Hrauni snéri við í dyrunum er fangaverðir fóru með hann til tannlæknis á Selfossi í morgun. Hann tók til fótanna og reyndi að leika á fangaverðina og faldi sig í félagsmiðstöð bæjarins. En fangaverðirnir höfðu upp á strokufanganum og gátu lokið erindi sínu á Selfossi án frekari skakkafalla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert