Kaupþing auglýsir ný íbúðalán á morgun

Kaupþing auglýsir á morgun ný íbúðalán þar sem ekki þarf að greiða af höfuðstóli fyrstu 5 árin. Þessi lán eru einkum ætluð fyrir ungt fólk, sem er nýkomið úr námi. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Lánsupphæðin er 80% af verði íbúðar en að auki bjóðast sérstök lán fyrir afganginum af íbúðaverðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert