Þjófar voru á ferðinni á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tölvuskjá var stolið úr húsi í Hafnarfirði og þá hvarf samskonar tæki úr grunnskóla í sama bæjarfélagi, að því er segir í frétt frá lögreglunni.
Þá var kerra tekin frá bensínstöð í Grafarvogi, dekkjum var stolið úr geymslu í austurborginni og í miðborginni var brotist inn í bíl og úr honum teknar tvær ferðatökur. Þá var karlmaður á sjötugsaldri staðinn að hnupli í matvöruverslun í Breiðholti.