Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, mun ekki nú síðdegis halda áfram að mæla á Alþingi fyrir þingsályktunartillögu um jafnréttisáætlun. Til stóð að umræðum um málið yrði haldið áfram í dag en Magnús varð að hverfa úr ræðustóli í morgun þegar hann fékk aðsvif. Magnús mun hins vegar hafa ákveðið að fara heim og hvíla sig.