Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með sérstakt fíkniefnaeftirlit í nótt og fór hún m.a inn á nokkra skemmtistaði á höfuðborgarsvæðinu af því tilefni. Að sögn lögreglu komu upp 15 fíkniefnamál í nótt, en í flestum tilvikum var um neysluskammta að ræða. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort einhver þeirra sem lögreglan hafði afskipti af í nótt hafi verið að selja fíkniefni.