Einn var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær hann rúmlega 31,8 milljónir króna í vinning. Potturinn var fimmfaldur í kvöld. Sex voru með fjórar tölur réttar og bónustölu og fær hver þeirra tæpar 90 þúsund krónur í vinning. En lottótölur kvöldsins eru: 2, 6, 8, 32 og 35. Bónustalan er 14.