Sex teknir fyrir hraðakstur á Seyðisfirði

Norræna í Seyðisfjarðarhöfn.
Norræna í Seyðisfjarðarhöfn. Morgunblaðið/Einar Bragi

Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Seyðisfirði í seinustu viku og kærur fyrir önnur umferðarlagabrot voru níu. Klippt var af þremur bifreiðum og sex aðrar boðaðar í skoðun. Umferðaróhöpp urðu þrjú og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvun við akstur. Norræna kom ekki á þriðjudeginum vegna vonskuveðurs. Um helgina var ein líkamsárás kærð lögreglan telur sig vita hverjir voru að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert