Togarinn Sóley Sigurjónsdóttir kominn að landi

Sóley Sigurjónsdóttir komin að bryggju
Sóley Sigurjónsdóttir komin að bryggju mbl.is/Brynjar Gauti

Togarinn Sóley Sigurjónsdóttir GK er nú kominn að landi í Sandgerði. Skipið losnaði kl. 7:42 í morgun og var dregið að bryggjunni. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum liggur ekki fyrir með skemmdir á skipinu en allir úr áhöfn skipsins eru óhultir. Skipið strandaði á sandi þegar það mætti öðru skipi er það var að sigla inn í Sandgerðishöfn á sjöunda tímanum í morgun.

Togarinn Sóley Sigurjónsdóttir GK
Togarinn Sóley Sigurjónsdóttir GK mbl.is/Alfons
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert