Gekk frá samningi við Eykt

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri undirritaði fyrir hönd Reykjavíkurborgar samning við byggingafyrirtækið Eykt ehf, um leigu á 7000 fermetra skrifstofuhúsnæði í Borgartúni 10–12. Einnig var gengið frá samningum um sölu eignanna Borgartún 1, Borgartún 3, Skúlatún 2 og Hverfisgötu 14–14a.

Af hálfu Eyktar undirritaði Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður, samninginn. Árleg leiga verður um 160 milljónir. Söluverð eigna er 1,2 milljarðar sem verða staðgreiddir 1. október.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert