Lýst eftir vitnum vegna nauðgunar

Karlmaður réðist á unga konu inni á kvennasalerni í kjallara Radisson SAS hótels (Hótels Sögu) við Hagatorg og nauðgaði henni. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er hinn grunaði er á aldrinum 20-30 ára, í kringum 165 sm á hæð, krúnurakaður með dökkan hársvörð, dökkar augabrýr og dökk augu. Hann var klæddur í grænleitan jakka og bar grænleita derhúfu. Talið er að maðurinn sé frá Austur-Evrópu.

Starfsfólk staðarins reyndi að tryggja nærveru mannsins þar til lögreglan kæmi á staðinn, en hann komst á brott ásamt öðrum manni og hvarf sjónum í átt að Birkimel. Talið er að þeir hafi verið þrír saman fyrir atburðinn. Lögreglan lýsir eftir vitnum. Vitað er að unga konan mætti konu koma út af kvennasalerninu áður en atburðurinn gerðist.

Upplýsingasími lögreglunnar er 444 1100.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert