Tilkynnt var um bruna í yfirbyggðum trébáti við höfnina á Þórshöfn á Langanesi um fimmleytið í nótt, mikill eldur var í bátnum og er hann mikið skemmdur, líklega ónýtur. Vel gekk að slökkva eldinn en slökkviliðsmenn voru í um þrjá tíma að störfum við að tryggja að slökknað væri í öllum glæðum. Ekki er vitað um eldupptök en rannsókn á þeim hefst í dag.