Skjólborð fuku af vörubíl á tvo fólksbíla

Annar fólksbíllinn, sem skjólborðin fuku á, skemmdist mikið.
Annar fólksbíllinn, sem skjólborðin fuku á, skemmdist mikið. mbl.is/Júlíus

Há skjólborð fuku af vörubíl sem var á leið um Reykjanesbraut við Ásvelli en mjög hvasst er á þessum slóðum. Skjólborðin fuku á tvo fólksbíla, sem báðir skemmdust, þó annar meiri, en þeir sem í bílunum voru meiddust ekki. Lögreglan hefur lokað Reykjanesbrautinni fyrir umferð úr annarri áttinni en bæði lögregla og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð út vegna þessa óhapps.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert