Lögregla höfuðborgarsvæðisins hefur lokað Suðulandsvegi í austur við Norðlingaholt sökum ófærðar. Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu munu fara til aðstoðar fólki ef þess er þörf. Lögregla höfuðborgarsvæðisins vill einnig benda ökumönnum á að á Kjalarnesi er mjög vindasamt og bifreiðar hafa fokið út af Vesturlandsvegi í verstu hviðum.
Lögreglan á Selfossi hefur kallað út björgunarsveitir til að aðstoða ökumenn sem lent hafa í vandræðum á Hellisheiði en eins og áður sagði þá er búið að loka veginum.