Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi enduðu þrír bílar utan vegar í dag. Um klukkan 10:30 endaði ein bifreið utan vegar sunnan við Borgarfjarðarbrú. Tuttugu mínútum síðar varð annar útafakstur á Borgarfjarðarbraut við Grjóteyri. Um 11:30 endaði önnur bifreið út af á sama stað. Engin slys urðu á fólki. Veður hefur verið mjög slæmt á þessum slóðum í dag, en rekja má umferðaróhöppin til veðurofsans að sögn lögreglu.
Að sögn lögreglunnar á Akranesi hefur talsvert borið á því að öskutunnur og annað lauslegt hafi fokið í rokinu í dag. Ekkert tjón hefur orðið vegna þessa en lögreglan vill beina þeim tilmælum til fólks að binda niður lausamuni þegar ljóst er að von er á miklu hvassviðri.