Vitlaust veður á Suðurlands- og Vesturlandsvegi

Ekkert ferðaveður er í nágrenni höfuðborgarinnar
Ekkert ferðaveður er í nágrenni höfuðborgarinnar mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og á Selfossi hefur kallað út björgunarsveitir til að aðstoða fólk sem er í vandræðum á Suðurlandsvegi. Að sögn lögreglu er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á Kjalarnesi og á Suðurlandsvegi þar sem þar er mjög slæmt veður.

Hafa ökumenn lent í vandræðum bæði á Sandskeiði og Hellisheiði en veginum hefur ekki verið lokað fyrir umferð. Á Kjalarnesi, norðan við Grundarhverfi fauk bíll útaf fyrr í morgun en engin slys urðu á fólki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert