Flutningabifreið fór út af á Öxnadalsheiði

Flutningabifreið fór út af veginum á Öxnadalsheiði nú fyrir stundu. Engin slys á fólki urðu að sögn lögreglunnar á Akureyri. Veður er mjög vont á heiðinni og eru lögreglumenn nú á staðnum.

Þá varð umferðaróhapp á Hlíðarvegi á Akureyri þegar tvær bifreiðar rákust saman með þeim afleiðing að önnur þeirra valt. Engin slys urðu á fólki en báðir bílarnir eru óökufærir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert