Sjór flæddi yfir brimgarðinn við Ánanaust og Eiðisgranda í kvöld með þeim afleiðingum að sjór, stórgrýti og möl fór þar yfir göngustíga og tún. Sjór fór jafnframt yfir götuna og lokaði hringtorginu við JL-húsið í aðra áttina. Bílar þurftu því að aka á móti umferðinni til þess að komast leiðar sinnar. Menn frá Reykjavíkurborg voru kallaðir á staðinn til hreinsunarstarfa.