Lið Menntaskólans í Reykjavík komst í kvöld í úrslit spurningakeppninnar Gettu betur þegar það lagði lið Verslunarskólans, 37:27, í undanúrslitum í beinni útsendingu Sjónvarpsins. MR hafði forustu frá upphafi en munurinn var aldrei mikill fyrr en undir lokin. Síðari undanúrslitaþátturinn verður annað kvöld en þá keppa lið MK og MH.