Lögregla náði innbrotsþjófi með því að rekja spor hans

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rann á spor innbrotsþjófs.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rann á spor innbrotsþjófs. mbl.is/Júlíus

Í nótt var brotist inn í hús í austurbæ Reykjavíkur, þjófavarnarkerfi fór í gang og stakk þjófurinn af en náðist nokkru síðar eftir að lögreglumenn höfðu rakið spor hans í snjónum afar langa leið. Maðurinn barðist á hæl og hnakka þegar lögreglumenn höfðu hendur í hári hans. Slóðin lá um fjölda gatna í austurbænum og tók rúman klukkutíma að hafa uppi á manninum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert