Seinni ferð Herjólfs til Vestmannaeyja í dag hefur verið frestað vegna veðurs. Veðurstofan varar við stormi á miðhálendinu í dag. Suðlæg átt verður ríkjandi, víða 13-20 m/s og rigning, en heldur hægari og skúrir eða él sunnan og vestan lands í kvöld.