Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent frá sér ályktun, þar sem harðlega er átalið að skemmtistaðurinn Pravda, sem standi fyrir keppni í drykkju, réttlæti keppnina með veru 3 árs hjúkrunarfræðinema á staðnum.
„Það liggur í hlutarins eðli að 3 árs hjúkrunarfræðinemi er ekki fullnuma og má lögum samkvæmt ekki axla ábyrgð á þeirri neyðarþjónustu sem látið er í veðri vaka að fylgi veru hans á staðnum," segir í ályktuninni.
Segist stjórn félagsins taka undir áhyggjur landlæknis af atburðinum, sem komið hafi fram á vef embættisins 22. mars.