Lóa í fjörunni á Eyrarbakka

Lóa í fjörunni við Eyrarbakka í dag. Fremst sést nýfallinn …
Lóa í fjörunni við Eyrarbakka í dag. Fremst sést nýfallinn snjór. mbl.is/Jóhann Óli Hilmarsson

Ein lóa sást í fjör­unni á Eyr­ar­bakka í dag. Það var Jó­hann Óli Hilm­ars­son sem sá ló­una þar sem hún var á gangi í fjör­unni inn­an um aðra fugla. Björn Arn­ar­son, starfsmaður Fugla­at­hug­un­ar­stöðvar Suðaust­ur­lands, sá einnig tvær heiðlóur árs­ins á flugi við Ein­ars­lund í Hornafirði. Á síðustu árum hafa fyrstu ló­urn­ar sést á tíma­bil­inu 20. -29. mars en það verður ekki fyrr en und­ir miðjan apríl sem ló­urn­ar fara að streyma til lands­ins.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert