Skoða mbl.is að meðaltali tíu sinnum á dag

Þátttakendur í nýrri könnun Gallup á notkun vefmiðla heimsóttu mbl.is að meðaltali 70,2 í síðustu viku, en vísi.is að meðaltali 44,3 sinnum. Þátttakendur á aldrinum 20-29 ára heimsóttu mbl.is oftast, eða að meðaltali 86,4 sinnum, en sami hópur heimsótti vísi.is 53,8 sinnum.

Karlar heimsækja vefina oftar en konur. Karlar heimsóttu mbl.is að meðaltali 72,8 sinnum, en konur 67,6 sinnum. Karlar heimsóttu vísi.is 49 sinum að meðaltali, en konur 39,6 sinnum. Heimsóknir á vísi.is voru tíðastar hjá hópnum 30-39 ára, eða 58,4 skipti; sami hópur heimsótti mbl.is 81,8 sinnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert